Ætla að byrja þetta blogg á því að skíta yfir Bandaríkin. Eins og margt er gott hérna úti þá er sumt sem
meikar bara ekki sens. Fór með Krútta Pimp að versla í búð sem heitir Fry´s. Fry´s er ein stærsta verslunarkeðja í Bandaríkjunum. Við keyptum okkur bara venjulegan mat og svo var ég með bjór. Auðvitað var ég spurður um skilríki þegar að ég kom að kassanum eins og vanalega. Íslenska ökuskýrteinið mitt er jú rosalega flókið og alltof mikið af tölustöfum fyrir suma bandaríkjamenn, þannig að oftar en ekki kallar kassadaman á verslunarstjóran og þarf ég að útskýra fyrir honum hvar kennitalan mín er á kortinu, pæliði í því hversu heimskulegt það er!!!!!!! En í þetta skipti því að Krútti var með mér fékk ég ekki að kaupa bjórinn því hann er tuttugu ára.
Verslunarstjórinn;
I am sorry sir but your friend here is only 20 years so I can´t let you buy this beer. It´s just Fry´s policy.
Ekki var ég sáttur við kauða og auðvitað sagði ég honum að það kæmi honum ekkert við hvað félagi minn er gamall því það væri ég sem væri að kaupa bjórinn. Sagði hann þess ótrúlega lame setningu aftur. Ákvað ég þá að láta Krútta fara út í bíl og ég myndi labba aftur inn í búðina og kaupa bjórinn því þá væri ég einn og þá gæti hann ekkert sagt. Viti menn nei kauðinn bannaði mér að kaupa bjór. Ég hélt að ég myndi springa úr pirringi á staðnum og fór ég að rökræða þetta við hann fram og til baka, þetta var eins og ég væri að tala við vegg! En hérna í þarf maður víst að passa sig því þessir Bandaríkjamenn eru vísir til þess að gera allt, hringja jafnvel í 911 og láta handtaka mig ef þeir vilja. Þannig að ég sleppti þessu.
Pæliði aðeins í þessu, hvernig geta þeir bannað mér þetta, með þessu eru þeir að dæma mig fyrirfram og halda að Krútti sé líka að farað drekka bjórinn. Kemur þeim alllllllls ekkert við. Ætla þeir að banna 50 ára mömmu að kaupa sér rauðvín ef hún er með 12 ára syni sínum, neibb aldeilis ekki. Hún gæti alveg verið það klikkuð að leyfa syni sínum að súpa rauðvín.
Hérna geturðu líka keypt þér byssu 18 ára en nei þú mátt ekki standa við hliðina á 23 ára stráki meðan að hann kaupir sér bjór. Ótrúlegt en satt þá ganga um 65% stráka með byssu á sér hérna í Arizona enda margir drepnir hérna eftir byssuskot.
Niðurstaðan var sú að ég fór á bensínstöð hinumegin við götuna og keypti bjórinn minn þar.
Annað í fréttum er það að ég er byrjaður að fljúga á tveggja hreyfla vél eins og kannski sumir vita, fyrstu flugin hafa verið frekar erfið enda allt annað tæki heldur en þetta eins hreyfils dót, þarft að hugsa miklu meira um allt saman, hélt að þetta væri miklu auðveldara en vonandi kemur þetta.

Svona týpu ér ég núna að fljúga, Piper Seneca PA34-200T

Svona er hún að innan.
Svo hafa 2 atvik hafa gerst hérna á vistinni:
Númer eitt: Með eitruðustu kóngulóm í heimi ef ekki sú eitraðasta fannst á sundlaugarbakkanum hérna um daginn, svarta ekkjan. Held nú að lítið sem ekkert hafi verið gert í því enda enginn sem þorir að koma nálægt því kvikindi. Þeir sem ekki vita það er eitrið í henni hundrað sinnum eitraðra heldur en eitur úr skröltormi. Hinsvegar gengur maður ansi varlega um sundlaugarbakkana og horfir vel í kringum sig :)
Númer tvö: Eiginlega mjög fyndið atvik. Strákur sem heitir Mark fór með stelpu sem heitir Emma til Las Vegas (5klst akstur héðan). Eftir víst rosa gott fyllerí í Vegas komu þau til baka í sitthvoru lagi. Þessi blessaða Emma strunsaði morgunin eftir og sakaði Mark um kynferðislegt áreiti. Auðvitað var greyið drengurinn tekinn hér á fund. Það fyndna við þetta atvik er að þessi strákur er eins mikill hommi og hægt er og vita það örugglega flestir hérna nema greinilega þessi stelpa, þannig að fyrir vikið trúa henni mjög fáir. Og strákurinn harðneitar. Slúðrið að gerast hérna í US and A :)
Nú er hinsvegar kominn sá tími að mig virkilega langar að drífa mig heim í kuldan, í mitt eigið rúm, vera með Önnu og njóta þess að fá góðan mat frá hótel mömmu. En þeir sem ekki vita þá verður nýja heimilið mitt víst í Gaðrabænum. Og fer ég einmitt í flutning þegar ég kem heim.